Fjallað um sameiginlegt markaðsstarf á Sjávarútvegsráðstefnunni

26 November 2013

Sjávarútvegsráðstefnan var haldin 21.-22. nóv sl. Þar var fjallað m.a. um sameiginlegt markaðsstarf á erlendum mörkuðum. Skjöldur Pálmason sem er einn þátttakenda í markaðsverkefni um kynningu á saltfiskafurðum í Suður Evrópu sem Íslandsstofa stýrir kynnti verkefnið auk þess sem flutt var áhugavert erindi um markaðsstarf Alaskabúa. Þá hélt Guðný Káradóttir forstöðumaður hjá Íslandsstofu erindi um kynningarstarf undir merkjum Iceland Responsible Fisheries og gildi upprunamerkinga í markaðsstarfi. Erindin á Sjávarútvegsráðstefnunni eru nú aðgengileg á vefnum.