Sjávarútvegssýningin í Boston

15 mars 2020 - 17 mars

Seafood Expo North America og Seafood Processing North America fara fram dagana 15.- 17. mars 2020. Þetta eru stærstu sýningar sinnar tegundar í Norður-Ameríku og hafa þær verið í töluverðri sókn undanfarin ár. Sýnendur eru um 1.400 frá 50 löndum og gestir eru um 20.000 frá um 100 löndum. Auk sýningarinnar er fjöldi fróðlegra fyrirlestra haldinn í sýningarhöllinni. 

Sameiginlegir hagsmunir íslenskra útflytjenda sjávarafurða verða kynntir á sýningunni undir merkjum Iceland Responsible Fisheries (IRF), vottun fiskveiða og markaðsmál. 

Einnig er þjóðarbás með búnaði, tæknilausnum og þjónustu við sjávarútveg á Seafood Processing hluta sýningarinnar. 

Nánari upplýsingar og beiðni um fundi með fulltrúum Íslandsstofu og Ábyrgra fiskveiða veitir Björgvin Þór Björgvinsson, bjorgvin@islandsstofa.is sími 511 4000. 

Nánari upplýsingar um skipulagningu og þjóðarbása fyrir íslenska aðila veitir Berglind Steindórsdóttir, berglind@islandsstofa.is,  sími 511 4000.