Þátttaka í sjávarútvegssýningu í Kína 1.-3. nóv.

Þátttaka í sjávarútvegssýningu í Kína 1.-3. nóv.

13 nóvember 2017

Iceland Responsible Fisheries (IRF) kynnti sameiginlega hagsmuni íslensks sjávarútvegs undir merkjum IRF, ábyrgar veiðar og vottun á sjávarútvegssýningunni í Qindao 1.-3. nóvebmer sl.  Íslandsstofa hafði umsjón með þátttöku íslensku aðilanna á sýningunni. Á íslenska svæðinu tóku auk IRF þátt fyrirtækin Icelandic Asia, Iceland Pelagic, HB Grandi, VSV, About Fish, Reykjavik Seafood og Triton. Mikill fjöldi gesta sótti sýninguna og voru fulltrúar íslensku fyrirtækjanna almennt ánægðir með viðtökurnar.

Mikilvægustu afurðir sem Íslendingar flytja á Asíumarkað eru loðnuhrogn, grálúða og karfi en hlutfall Asíu í heildarútflutningsverðmætum hefur verið á bilinu 6-9% síðustu árin, 9% árið 2016.

Fjöldi sýnenda og gesta á China Fisheries & Seafood Expo hefur meira en tvöfaldast á undanförnum árum og er sýningin stærsta sinnar tegundar í Asíu með yfir 29.000 gesti frá um 100 löndum og 1.400 sýnendur sem gerir hana að næst stærstu sjávarútvegssýningu heims, á eftir sýningunni í Brussel. Sérstaklega hefur orðið mikil fjölgun á erlendum sýnendum.

Sýningin fer fram á sama stað að ári, dagana 7. - 9. nóvember 2018.