Sjávarútvegssýningarnar í Brussel 6.-8. maí

Sjávarútvegssýningarnar í Brussel 6.-8. maí

25 apríl 2014

Líkt og síðustu ár mun Iceland Responsible Fisheries (IRF) verða kynnt á afurðasýningunni Seafood Expo Global sem haldin verður í Brussel 6.-8. maí nk. í höll 6, bás númer 834.  Áhersla er lögð á að kynna Ísland sem upprunaland hreinna og heilnæmra sjávarafurða og vottun og ábyrgar fiskveiðar Íslendinga. Nú eru 111 fyrirtæki, þar af 73 íslensk, sem taka þátt í IRF verkefninu og kynna íslenskar sjávarafurðir undir sameiginlegu upprunamerki.

Kaupendur og seljendur á íslenskum sjávarafurðum og aðrir hagsmunaaðilar eru boðnir velkomnir til fundar við starfsfólk Ábyrgra fiskveiða ses og Íslandsstofu sem sjá um að kynna verkefnið, íslenskan sjávarútveg, vottun og markaðsmál. Á sýningunni er hægt að bóka fundi með Finni Garðarssyni verkefnisstjóri hjá Ábyrgum fiskveiðum ses, Guðnýju Káradóttur forstöðumanni og Björgvini Þór Björgvinssyni verkefnisstjóra hjá Íslandsstofu.

Vinsamlegast hafið samband við Guðnýju Káradóttur varðandi nánari upplýsingar og til að bóka fundi í síma 511 4000 eða sendið póst á gudny@islandsstofa.is.

Rúmlega 30 íslensk fyrirtæki taka þátt

Íslandsstofa sér um skipulagningu og uppsetningu á sýningaraðstöðu stærsta hluta íslensku fyrirtækjanna sem taka þátt í Brussel og sér til þess að þarfir  þeirra varðandi vinnuaðstöðu séu uppfylltar þannig að þau geta einbeitt sér að sölu- og markaðstarfssemi. Búast má við að milli 500 og 1000 Íslendingar séu í Brussel meðan á sýningunni stendur, sýnendur og gestir.

Sýningin sem haldin er í 22. sinn í ár er stærsta sjávarútvegssýningin í heimi og sú mikilvægasta. Um 1.700 sýnendur frá 75 löndum taka þátt - sýnt er í sjö sýningarhöllum - og gestir eru um 25.000 frá 140 löndum. 

Tveir íslenskir þjóðarbásar eru á sýningunni, á afurðasýningunni í höll 6 og á tækjasýningunni í höll 4, samtals 750 fm. Auk fyrirtækjanna sem eru á þjóðarbásunum eru nokkur íslensk fyrirtæki með eigin bása, s.s. Marel, Promens, Icelandic, Iceland Seafood og Samherji og eru því íslensku fyrirtækin að leggja undir sig um 1.500 fm á sýningunni.

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun heimsækja sýninguna og kynna sér markaðs- og kynningarstarf íslensku sýnendanna.

Eftirtalin fyrirtæki og samtök taka þátt á sýningunni í samstarfi við Íslandsstofu:

Á afurðasýningunni Seafood Expo Global

  1. Arctic salmon – www.arcticsalmon.is
  2. Félag atvinnurekenda – www.atvinnurekendur.is
  3. Golden Seafood Company – www.goseco.com
  4. HB Grandi – www.hbgrandi.is
  5. Iceland Pelagic – www.icelandpelagic.is
  6. Iceland Responsible Fisheries – www.responsiblefisheries.is
  7. Íslandsbanki – www.isb.is
  8. Íslandsstofa – www.islandsstofa.is
  9. Íslenska umboðssalan – www.isa.is
  10. Marko Partners – www.markopartners.com
  11. Menja – www.menja.is
  12. Novo Food – www.novofood.com
  13. Ogurvik – www.ogurvik.is
  14. Triton – www.triton.is
  15. Vísir – www.visirhf.is
  16. VSV –  www.vsv.is

Á tækjasýningunni Seafood Processing Global

  1. 3X Technology – www.3x.is
  2. Azazo – www.azazo.is
  3. Borgarplast – www.borgarplast.is
  4. Eimskip – www.eimskip.is
  5. Hampidjan – www.hampidjan.is
  6. Hedinn – www.hedinn.is
  7. Maint Soft – www.maintx.net
  8. Ocean Excellence – www.oceanexcellence.is
  9. Optimar Island – www.optimar.is
  10. Samskip – www.samskip.is
  11. Skaginn – www.skaginn.is
  12. Traust know how – www.traust.is
  13. TrackWell – www.trackwell.is
  14. Valka – www.valka.is
  15. Wise – www.wise.is

Tvö útgáufyrirtæki munu dreifa tímariti með upplýsingum um íslenskan sjávarútveg og viðtölum við sýnendur: Athygli gefur út Cool Atlantic og Goggur gefur út Icelandic Fishing Industry Magazine

Nánari upplýsingar um sýninguna veita Berglind Steindórsdóttir, berglind@islandsstofa.is og Guðný Káradóttir, gudny@islandsstofa.is, í síma 511 4000.