Sjálfbærni vaxandi krafa á Kínamarkaði

Sjálfbærni vaxandi krafa á Kínamarkaði

7 nóvember 2018

Sex fyrirtæki kynna þar sjávarafurðir og eldisafurðir á sýningunni: Iceland Pelagic, VSV, Icelandic Asia, ÍslandsLax, Triton og Life Iceland. 

Þetta er í 23. sinn sem sýningin er haldin og hefur fjöldi sýnenda og gesta meira en tvöfaldast á undanförnum árum. Hún er stærsta sýning sinanr tegundar í Asíu með yfir 29.000 gesti og um 1.500 sýnendur. 

Íslandsstofa vinnur náið með Sendiráði Íslands í Kína í að kynna hagsmuni Íslands í utanríkisviðskiptum og þar skipta sjávarafurðir miklu máli. Fulltrúi sendiráðsins flutti m.a. fyrirlestur á málþingi um sjálfbærni, „Sustainable Seafood Forum 2018“, sem haldið var samhliða sýningunni. Nokkur þjóðlönd fengu tækifæri á að kynna sig á ráðstefnunni og kynnti hann fiskveiðistefnu Íslands, stjórnun ábyrgra fiskveiða og vottun undir merkjum IRF. 

Sjálfbærni og vitund neytenda um umhverfisvæna framleiðslu er stöðugt að aukast, að sögn Guðnýjar Káradóttur, forstöðumanns sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu. „Við teljum því mikilvægt að koma boðskap okkar á framfæri í Kína í samstarfi við þá aðila sem eru að selja inn á markaðinn. Verið er að skoða leiðir til kynningarsamstarfs og mun stafrænt efni, video, uppskriftir og fróðleikur um hollustu skipta máli í kynningu í Kína. Vefverslun er í stöðugum vexti í Kína og fiskur er að vinna sér þar sess einnig og mikil tækifæri til kynningar.  Þá vekur athygli að kínverjar eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir fisk sem þeir gefa ungum börnum í ljósi þess að um mjög hollan mat er að ræða“ segir Guðný.

Gestirnir sem koma á íslenska básinn eru að spyrja um alls kyns afurðir s.s. gullkarfa, grásleppu, hrogn, sæbjúgu, grálúðu og þorsk. Þá hafa fyrirtækin boðað fundi við viðskiptavini og er sýningin því einnig vettvangur til að treysta viðskiptatengsl.

Nánari upplýsingar um þátttöku IRF á sýningunni veitir Guðný Káradóttir, forstöðumaður sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu, gudny@islandsstofa.is.

Sjá einnig vef China Fisheries & Seafood Expo