Samningur við Kokkalandsliðið endurnýjaður

Samningur við Kokkalandsliðið endurnýjaður

24 janúar 2018

Ábyrgar fiskveiðar og Íslandsstofa endurnýjuðu á dögunum samstarfssamning sinn við Kokkalandsliðið og verða áfram bakhjarlar liðsins. Samningurinn snýr að kynningu á Íslandi sem upprunalandi hreinna og heilnæmra afurða á erlendum vettvangi, sem og að halda á lofti gæðum og árangri íslenskra kokka. 

Íslenskir matreiðslumenn og meðlimir í Kokkalandsliðinu hafa tekið þátt í fjölmörgum verkefnum við að kynna íslenskar sjávarafurðir, bæði á viðburðum erlendis og hér á landi. Þeir þekkja hráefnið vel, eru kröfuharðir varðandi gæði og ferskleika, og veita innblástur um eldamennskuna gagnvart erlendum kokkum.

Kokkalandsliðið mun taka þátt í einstökum verkefnum Íslandsstofu tengdum komu erlendra blaðamanna til Íslands og kynningu á íslenskum matvælum erlendis. Næsta stórmót liðsins er heimsmeistaramótið í matreiðslu, sem haldið verður í Luxemborg í nóvember.