Kynningarfundur í París

Kynningarfundur í París

1 febrúar 2018

Mikil aukning hefur verið á útflutningi sjávarafurða til Frakklands á liðnum árum. Frakkland er nú stærsti markaðurinn fyrir ferskan þorsk.

Þann 24. janúar sl. skipulagði Íslandsstofa kynningarfund fyrir hönd Ábyrgra fiskveiða ses í samstarfi við sendiráðið í París. Á fundinn var boðið dreifingaraðilum og kaupendum á sjávarafurðum og á dagskránni var kynning á fiskveiðistjórnun Íslendinga, fiskirannsóknir og vottun fiskveiða undir merkjum Iceland Responsible Fisheries. Einnig var rætt um markaðsmál og samstarf um kynningu á sjávarafurðum á franska markaðinum. Auk þess var fundað sérstaklega með tveimur umhverfisverndarsamtökum, WWF og Ethnic Ocean (áður Seaweb). 

Kristján Freyr Helgason sérfræðingur sem er staðsettur í sendiráðinu í Brussel kynnti fiskveiðistjórnun, útskýrði aflareglur við stjórn fiskveiða, skipulag eftirlits o.fl. Þorsteinn Sigurðsson lýsti starfsemi sinnar stofnunar, Haf og vatn, á sviði fiskirannsókna og ráðgjafar. Finnur Garðarsson sagði frá vottunarmálum undir merkjum Iceland Responsible Fisheries, en þrjár tegundir eru nú í ferli í fullnaðarvottun: langa, keila og íslenska sumargotssíldin. Guðný Káradóttir hjá Íslandsstofu sagði frá markaðsmálum og tækifæri til samstarfs í kynningu á íslenskum sjávarafurðum. Hrefna Karlsdóttir frá SFS tók saman helstu þætti í kynningunum og kom líka inn á árangur í íslenskum sjávarútvegi s.s. á sviði umhverfismála, minnkuð eldsneytisnotkun í skipaflotanum. 

Að loknum kynningum var boðið upp á veitingar úr þorski, ufsa, löngu, steinbít og karfa, sem allt eru vinsælar tegundir í Frakklandi, og fundargestir gátu rætt nánar um málefni fundarins við framsögufólkið.