Kynningarsamstarf á íslenskum þorski í Barcelona

Kynningarsamstarf á íslenskum þorski í Barcelona

21 mars 2017

Markaðsverkefnið Bacalao de Islandia tekur þátt í Ruta del Baccallà sem stendur yfir í Barcelona 9.-26. mars. Um er að ræða samstarf við DAMM Estrella og útvatnarasamtökin (Gremi de Bacallaners). Þetta er í 5. sinn sem þessi viðburður er haldinn og í annað skipti sem markaðsverkefnið tekur þátt.  Opnunarviðburður fór fram 6. mars en þar var komið inn á sérstök gæði íslenska þorsksins í pallborðsumræðum, en hann sóttu bæði blaðamenn og aðrir sem tengjast. Kynningarefni um markaðsverkefnið var hluti af fundargögnum og gestir fengu hágæða saltaðan þorskhnakka merktan verkefninu, sem útvatnarar höfðu útbúið. Þá fékk „nýliði ársins“ meðal útvatnara verðlaun. Í þetta skiptið var nýliðinn Alert Om, þekktur katalónskur útvarpsmaður og fékk hann sérstakan verðlaunagrip merktan Bacalao de Islandia. Svo skemmtilega vill til að útvarpsmaður þessi stjórnar vinsælum þætti á RAC1 sem ber nafnið Islandia, en hann kom einmitt til landsins í janúar og sendi út þátt frá Reykjavík.

Í þessar rúmu tvær vikur sem Ruta del Baccallà stendur yfir mun markaðsverkefnið reglulega bjóða upp á þorsksmakk hjá ákveðnum útvötnurum, sem eru með bása á hinum ýmsu matarmörkuðum þar í borg.  Þar verður markaðsefni dreift og afgreiðslufólk vel merkt Bacalao de Islandia. Útvatnarar eru sérstök starfstétt í Katalóníu, en þeir eru algerlega sérhæfðir í skurði, útvötnun og sölu á saltfiski.

Barcelona hefur löngum verið með allra mikilvægustu mörkuðum fyrir íslenskan saltfisk og á hann sér ríka sögu í hillum útvatnara á mörkuðum þar í borg. Þar eru gríðarlega miklar hefðir tengdar neyslu á þessari vöru, ekki hvað síst í kringum páskaföstuna. Markaðsrannsóknir sem hafa verið framkvæmdar á vegum verkefnisins hafa staðfest að neytendur á þessu svæði þekkja íslenskan uppruna betur en annars staðar, og tengja hann umfram allt við gæði vörunnar. Þess vegna er um algeran lykilmarkað að ræða, og mikilvægt að halda í þessa sterku ímynd íslenska upprunans.