Fjölmenni á sýningunni í Brussel

Fjölmenni á sýningunni í Brussel

3 maí 2017

Iceland Reponsible Fisheries tók þátt í afurðasýningunni Seafood Expo Global sem haldin var samhliða tækjasýningunni Seafood Processing Global, dagana 25.-27. apríl 2017 í Brussel. Sýningin var vel sótt og margir sem komu til fundar við fulltrúa Íslandsstofu og Iceland Responsible Fisheries á sýningunni.

Aukinn áhugi er á kynningarsamstarfi í að kynna íslenskar afurðir og voru haldnir fundir með kaupendum til að ræða slík mál og vottunarverkefni IRF. 

Global Sustainable Seafood Initiative (GSSI) hélt fund á sýningunni um stöðu og þróun verkefnisins en markmiðið með starfsemi GSSI er að auka gagnsæi vottunar og auðvelda samanburð vottunarverkefna og efla þannig traust og stuðla að upplýstu vali í viðskiptum með vottaðar sjávarafurðir. Á fundinum kom fram að stórir kaupendur eins og Ahold Delhaize, Kroger, Morrison's, Walmart, Metro Group og Sodexo standa nú að baki GSSI og hafa það sem eina af kröfum sína í innkaupum, að kaupa fisk sem hefur hlotið vottun og sem GSSI hefur viðurkennt. Fulltrúar Ahold Delhaize og Metro kynntu m.a. sín sjónarmið á fundinum.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, heimsótti sýninguna ásamt sendiherra Íslands í Brussel og fylgdarliði, hitti íslensku fyrirtækin og kynnti sér sýninguna. Hún hitti einnig kaupendur og ráðamenn annarra landa og ræddi sjávarútvegsmál. 

Íslandsstofa hafði umsjón með þjóðarbásum Íslands á sýningunni og rúmlega 30 fyrirtæki tóku þátt í samstarfi við Íslandsstofu, bæði afurðafyrirtæki og tækni- og þjónustufyrirtæki. Mikill fjöldi Íslendinga heimsótti sýninguna og margir fundir haldnir, bæði með erlendum kaupendum og milli íslenskra fyrirtækja.