Endurskoðun rekjanleikastaðals - 60 daga umsagnarferli

Endurskoðun rekjanleikastaðals - 60 daga umsagnarferli

8 maí 2017

Formlegri fimm ára endurskoðun og uppfærslu rekjanleikastaðalsins (IRFM Chain of Custody Standard) af hálfu tækninefndar Ábyrgra fiskveiða ses. (ÁF) er lokið.  Fyrir hönd þátttökuaðila ÁF og íslensks sjávarútvegs tilkynnist hér með  að endurskoðaður og uppfærður rekjanleikastaðall ÁF vegna vottunar ábyrgra fiskveiða á Íslandi, sem gefinn var fyrst út árið 2011, og uppfærður 2016 samhliða ISO faggildingu staðalsins 2016, er nú opinn til kynningar og umsagnar í 60 daga,  frá 8. maí til 6. júlí 2017. Endurskoðun staðalsins hófst í desember 2016 og endanleg uppfærsla var samþykkt samhljóða af tækninefnd ÁF í mars 2017.

Um Ábyrgar fiskveiðar og staðalinn

Megintilgangur vottunar á vegum ÁF er að sýna fram á á gagnsæjan hátt, að Íslendingar stundi ábyrgar fiskveiðar og fari að alþjóðlega viðurkenndum samningum og fylgi viðmiðum sem sett eru af Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ, FAO. 

IRFM rekjanleikastaðallinn byggir m.a. á Leiðbeiningum FAO um umhverfismerkingar og vottun á veiðum og afurðum villtra fiskistofna frá 2005/09 (FAO Guidelines for the Ecolabelling of Fish and Fishery Products from Marine Capture Fisheries), ásamt ISO stöðlum og öðrum alþjóðlegum samningum um staðlagerð og faggildingu. 

Vottun sem byggir á IRFM rekjanleikastaðlinum hefur hlotið faggildingu samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum ISO staðli (ISO/IEC 17065:2012 Standard for certification of product and process schemes). Faggildingin var unnin af INAB (Irish National Accreditation Board), sem er aðili að Alþjóðasamtökum faggildingaraðila (International Accreditation Forum). 

Tækninefnd ÁF, sem ber ábyrgð á skrifum og útgáfu staðla ÁF, samanstendur af sérfræðingum frá opinberum stofnunum, sem tengjast sjávarútvegi og félögum og fyrirtækjum í greininni. Tækninefndinni ber samkvæmt verklagsreglum að uppfæra formlega staðla á fimm ára fresti að lágmarki. Eftir þá endurskoðun ber að setja endurskoðaðan staðal í 60 daga kynningar- og umsagnarferli skv. leiðbeiningum FAO og kröfum GSSI.

Tækninefndin mun taka til skoðunar allar efnislegar athugasemdir, sem berast og sem leiða til breytinga til batnaðar miðað við hlutverk og markmið staðalsins. Nefndin mun ekki svara skriflega einstökum athugasemdum.

Áhugasamir aðilar geta sent inn athugasemdir um staðalinn sbr. eftirfarandi leiðbeiningar.  

Sjá fréttatilkynningu á ensku.

Umsagnarferli - leiðbeiningar 

Hér með er áhugasömum gefið tækifæri á að koma með athugasemdir við IRFM rekjanleikastaðalinn á tímabilinu 8. maí – 6. júlí 2017. 

LEIÐBEININGAR: 

  • Nafnlausar athugasemdir verða ekki teknar til greina.
  • Hver umsagnaraðili getur aðeins sent athugasemdir einu sinni og verður að vera unnt að rekja athugasemd til tengiliðs umsagnaraðilans. 
  • Skoðanir, sem fram koma í athugasemdum, geta aðeins tjáð skoðanir eins umsagnaraðila. Athugasemdir sem eiga að tjá skoðanir fleiri en einna samtaka verða ekki teknar til greina. 

Tilgreina skal kafla og greinar í staðlinum, sem gera á athugasemdir við til að unnt sé að taka athugasemdir til greina.