Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu
Kokkalandslið Íslands keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu í Erfurt í Þýskalandi 22.-25. október og fylgir eftir framúrskarandi árangri sínum frá síðasta Heimsmeistaramóti sem skilaði liðinu í 5. sæti á heimslista. Liðið er í toppformi en æfingar hafa staðið yfir í 18 mánuði. Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries er einn af bakhjörlum Kokkalandsliðsins og hefur átt gott samstarf við liðið í kynningu á íslensku hráefni og matarmenningu í fjölbreyttum verkefnum á erlendum vettvangi.
Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti. Lið frá um 40 þjóðum keppa á leikunum, um 2.000 af færustu kokkum heims, sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Íslenska kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.
Liðið notar íslenskt hráefni í réttina, m.a. ýsu, humar, skyr, nautahryggvöðva og íslenskt grænmeti.
- Þráinn Freyr Vigfússon, sjálfstætt starfandi, faglegur framkvæmdastjóri.
- Bjarni Siguróli Jakobsson, Canopy hótel, fyrirliði.
- Jóhannes Steinn Jóhannesson, Canopy hótel, liðsstjóri.
- Steinn Óskar Sigurðsson, Vodafone, liðsstjóri.
- Hafliði Halldórsson, sjálfstætt starfandi, framkvæmdastjóri.
- Björn Bragi Bragason, Síminn, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
- Ylfa Helgadóttir, Kopar.
- Stefán Viðarsson, Icelandair Hotels
- Hrafnkell Sigríðarson, Ion Hótel.
- Hafsteinn Ólafsson, Ion Hótel.
- Atli Þór Erlendsson, Grillið Hótel Saga.
- Sigurður Ágústsson, Tryggvaskáli.
- Axel Björn Clausen, Fiskmarkaðurinn.
- Garðar Kári Garðarsson, Strikið.
- Georg Arnar Halldórsson, Kolabrautin.
- María Shramko, sjálfstætt starfandi.
- Fannar Vernharðsson, Vox.
Instagram: @icelandicculinaryteam