Góður árangur Kokkalandsliðsins

Góður árangur Kokkalandsliðsins

27 október 2016

Íslenska kokkalandsliðið fékk gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fram fóru í Þýskalandi dagana 22.-26. október sl. Liðið hafði sex klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti, en á matseðlinum var m.a. léttreykt ýsa með humri í forrétt. Liðið vann einmitt silfurverðlaun sín fyrir heita matinn.

Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari liðsins, sagði þetta um árangurinn í keppninni: “Við erum mjög ánægð með þennan árangur. Liðið stóð sig vel í keppninni og silfurverðlaunin fyrir heita matinn staðfesta að við erum með mjög sterkt og vel æft lið sem vinnur vel saman. Við höfum lagt áherslu á að nota hágæða íslenskt hráefni. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dómgæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið, heldur er einnig tekið mið af fagmennsku við undirbúning og hvernig liðið vinnur saman að matargerðinni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum stóð liðið sig einnig vel.“

Landslið frá um 40 löndum keppa í nokkrum keppnum. Hátt í 25.000 gestir mættu í keppnishöllina meðan á keppninni stóð. Singapore var sigurvegari Ólympíuleikanna í samanlögðum stigum, Finnland var í öðru sæti og Sviss í þriðja sæti. Á leikunum er keppt í mörgum greinum og var Ísland í 3. sæti landsliða í eftirréttum “Culinary Pastry Art”.

Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries hefur frá árinu 2014 verið einn af bakhjörlum liðsins.  “Það er mikilvægt fyrir Kokkalandsliðið að hafa öfluga aðila sem styðja við bakið á okkur og erum við þakklát öllum bakhjörlunum og samstarfsaðilunum sem lögðu sitt af mörkum til að við gætum tekið þátt í keppninni. Við erum að keppa við fjölmennar þjóðir sem leggja mikið undir og því er árangurinn sem við náðum enn eftirtektarverðari. Þessi glæsilegi árangur liðsins gefur okkur möguleika á að efla liðið enn frekar fyrir næstu keppnisþátttöku,” segir Þráinn ennfremur. 

Í Kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari, Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn, Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri, Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Hrafnkell Sigríðarson, Atli Þór Erlendsson, Sigurður Ágústsson, Georg Arnar Halldórsson og María Shramko.

Nánari upplýsingar

Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari Kokkalandsliðsins, s. 695 2999, thrainnfreyr@gmail.com

Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, sími: 8493212, bjarnisj@icehotels.is

Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri Kokkalandsliðsins, s. 772 8228, chefhaflidi@gmail.com

Stefanía Ingvarsdóttir, s. 697 3366, stefaniaingvars@gmail.com

https://www.facebook.com/Kokkalandslidid

 Instagram: @icelandicculinaryteam – Twitter: @kokkalandslidid