Hollenskir matgæðingar kynnast íslenskum afurðum

Hollenskir matgæðingar kynnast íslenskum afurðum

6 desember 2017

 

Íslenskir kokkar elduðu fyrir matgæðinga í Hollandi


Hollenska dreifingarfyrirtækið Versvishandel Jan van As, sem er aðili að Iceland Responsible Fisheries (IRF), hélt kynningu á íslenskum sjávar- og eldisafurðum í Amsterdam nýlega. Hópur hollenskra matgæðinga sem samanstendur af kokkum og öðrum áhugamönnum um mat, fengu meðal annars innblástur frá íslenskum kokkum um matreiðslu á íslensku afurðunum.

Um var að ræða samstarf við IRF og Íslandsstofu sem aðstoðaði við undirbúning og ferð íslensku kokkana, auk þess að útvega kynningarefni af ýmsu tagi. Jan van As heldur reglulega kynningar af þessu tagi fyrir hóp matgæðinga undir merkjum “Fish&Inspiration”og nú var áherslan á þorsk, humar og bleikju frá Íslandi. Í hópnum eru kokkar frá þekktum veitingastöðum og hótelum í Hollandi sem velja gjarnan íslenskar afurðir fyrir veitingastaði sína. Markmiðið með kynningunni er að efla þekkingu hópsins á íslenskum afurðum, sjálfbærni, vottun og gæðamálum, auk þess að veita innblástur um eldamennsku.

Kynningin fór fram á veitingastaðnum “Amsterdams Proeflokaal” þann 20. nóvember og þar sáu íslensku kokkarnir Einar Björn Árnason og Guðlaugur P. Frímannsson um sýnikennslu. Einar Björn, sem er eigandi og kokkur á Einsa Kalda í Vestmannaeyjum, eldaði íslenskan þorsk og fékk aðstoð frá hinum þekkta hollenska kokki Arjan Speelman, yfirkokki á veitingastaðnum Ciel Bleu (Hotel Okura Amsterdam) sem er með tvær Michelin stjörnur. Guðlaugur, sem er kokkur á Grillmarkaðnum,  eldaði bleikju sem var borin fram með rúgbrauðsmylsnu og silungshrognum. Þar að auki var kynning á íslenskum humri sem hollenskur kokkur eldaði. Eftir sýnikennsluna elduðu íslensku kokkarnir í samstarfi við hollenska starfsbræður sína fjögurra rétta hádegisverð fyrir gestina sem svo voru hæstánægðir með viðburðinn. 

Þetta samstarf IRF við hollenska fyrirtækið Jan van As er gott dæmi um hvernig kynna má Ísland og íslenskar afurðir fyrir lykilaðilum á hagkvæman og markvissan hátt. Gestirnar sem sóttu viðburðinn eru áhrifavaldar þegar kemur að innkaupum á sínum veitingastöðum og vel heppnuð kynning mun án efa styrkja stöðu íslenskra afurða á markaðnum.