Fiskur á dagskrá í Madrid

4 febrúar 2013

Spænsk-íslenska viðskiptráðið og Íslandsstofa, í samvinnu við Utanríkisráðuneytið, standa fyrir viðskiptafundi í Madríd í dag 4. febrúar. Tilgangur fundarins er að efla tengslin milli Spánar og Íslands og verður lögð áhersla á orkumál, ferðamannaiðnað, fiskveiðar og stjórnmál.

Tæplega 200 manns sækja fundinn sem er haldinn í húsakynnum Viðskiptaráðs Madrídar. Meðal fyrirlesara er Magnús B. Jónsson, yfirmaður Iceland Seafood á Spáni, sem er að kynna íslenskan sjávarútveg.

Viðburðurinn er hugsaður fyrir þá sem vilja styrkja tengslin við Spán eða hefja viðskipti í landinu. Samhliða gefst tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að komast í samband við spænsk fyrirtæki og er þetta því kjörinn vettvangur til að finna samstarfsaðila.