Markaðsátak í Suður Evrópu
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 20 milljónum króna í sameiginlegt markaðsátak fyrir íslenskar saltfiskafurðir á árinu 2013. Það eru Íslandsstofa og Íslenskir saltfiskframleiðendur (ÍSF) sem höfðu frumkvæði að mótun markaðssamstarfs til kynningar á söltuðum þorskafurðum í Suður Evrópu. Framlag ríkisstjórnarinnar miðast við að jafnhátt eða hærra framlag renni til átaksins frá öðrum samstarfsaðilum, fyrirtækjum í greininni eða öðrum þeim sem kunna að ganga til liðs við verkefnið, en það er opið öllum þeim sem framleiða eða flytja út afurðir á þetta markaðssvæði.
Íslenskar saltfiskafurðir og hertur fiskur voru árið 2011 um 14% af útflutningsverðmæti sjávarfangs eða um 30 milljarðar króna og skilaði blautverkaður saltfiskur einn og sér 15,5 milljörðum króna. Markaðir í Suður Evrópu hafa verið að dragast saman að undanförnu vegna erfiðs efnahagsástands og harðnandi samkeppni. Í þessu markaðsátaki fyrir sjávarafurðir verður lögð áhersla á mikilvægustu markaðslöndin á þessu svæði eða Spán, Portúgal og Ítalíu. Íslandsstofa sér um framkvæmd og fjárhag verkefnisins.
Markmiðið er að efla samkeppnisstöðu íslenskra saltfiskafurða og auka verðmætasköpun með því að:
- byggja upp orðspor og ímynd íslenskra saltfiskafurða sem úrvals afurða með því að vekja athygli á íslenskum uppruna og sérstöðu sem tengist gæðum og hreinleika,
- treysta tengsl við lykilhagsmunaaðila, innkaupa- og dreifingaraðila með fræðslu og kynningum,
- skapa áhuga kaupenda á íslenskum fiski og festa í sessi nýja neytendur.
Markaðsátakið mun byggja á þeirri meginstefnu sem mörkuð hefur verið í kynningarstarfi í sameiginlegu markaðsstarfi fyrir íslenskar sjávarafurðir hjá Íslandsstofu í gegnum Iceland Responsible Fisheries, kynningu á Íslandi á erlendum mörkuðum og íslenskum uppruna. Áhersla er lögð á að kynna gæði og ferskleika afurða sem eiga uppruna í hreinu hafsvæði þar sem stundaðar eru ábyrgar fiskveiðar. Þekking, reynsla og aðferðafræði sem byggð hefur verið upp í öðrum verkefnum, s.s. Ísland - allt árið, verður nýtt í markaðsstarfinu og lögð áhersla á samhæfingu við annað kynningarstarf Íslandsstofu, til framdráttar þessu verkefni.
Hagsmunaaðilar verða boðaðir til kynningarfundar fimmtudaginn 14. febrúar kl. 11.
Nánari upplýsingar um verkefnið veita:
Íslandsstofa - Guðný Káradóttir, gudny@islandsstofa.is, sími 511 4000
Félag íslenskra saltfiskframleiðenda - Guðbergur Rúnarsson, gudbergur@sf.is, sími 591 0360