Ábyrgar fiskveiðar ses stofnað
Sjálfseignarstofnunin Ábyrgar fiskveiðar ses var sett á laggirnar í febrúar 2011. Tilgangur félagsins er að eiga og annast rekstur vörumerkja um ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible Fisheries), gerð og viðhald samninga um vottun ábyrgra fiskveiða, miðlun upplýsinga um fiskveiðar Íslendinga með sérstaka áherslu á kaupendur og neytendur íslenskra sjávarafurða og önnur skyld verkefni. Markmið félagsins er að stuðla að og viðhalda ábyrgum fiskveiðum til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir. Félagið starfar á kostnaðargrunni (non-profit organization). Stofnendur eru LÍÚ, SF og LS.
Ábyrgar fiskveiðar ses tók yfir rekstur og utanumhald um vottun ábyrgra veiða Íslendinga, sem áður var stofnað til og rekið á vettvangi Fiskifélags Íslands. Finnur Garðarsson annast daglegan rekstur félagsins, samskipti vegna vottunarmála o.fl.