Ábyrgar fiskveiðar Íslendinga

Ábyrgar fiskveiðar Íslendinga

1 mars 2011

Icelandic Cod CertificateSífellt strangari kröfur eru gerðar til ábyrgra fiskveiða á alþjóðavettvangi, bæði hjá alþjóðastofnunum og meðal kaupenda sjávarafurða. Ísland hefur ávallt tekið virkan þátt í mótun alþjóðareglna á sviði fiskveiða og tekur fullt tillit til alþjóðasamninga í lagasetningu og framkvæmd fiskveiða og verndun sjávar.

Upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir og vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga er markaðstæki sem gefur framleiðendum og seljendum íslenskra sjávarafurða tækifæri til að staðfesta frumkvæði sitt í að mæta kröfum markaðarins með hagsmuni framtíðar kynslóða að leiðarljósi. Með markvissu innra starfi sjávarútvegsins og viðeigandi kynningarátaki er unnið að því að skapa íslenskum sjávarútvegi og íslenska merkinu traust og virðingu og treysta þannig stöðu íslensks sjávarútvegs á samkeppnismörkuðum.

Árið 2007 var yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga gefin út, en hana undirrituðu sjávarútvegsráðherra, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, fiskistofustjóri og formaður Fiskifélag Íslands.  Yfirlýsingin var svar við kröfum markaða um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og hafði þann tilgang að upplýsa kaupendur um hvernig stjórnun fiskveiða er háttað á Íslandi og að stjórnunin væri byggð á bestu vísindalegri þekkingu. Jafnframt kemur fram að íslensk stjórnvöld skuldbindi sig að fara að öllum alþjóðalögum og samningum um umgengni við auðlindir sjávar, sem þau hafa undirritað.

Í framhaldinu var ákveðið að auðkenna íslenskar sjávarafurðir sem unnar eru úr afla í íslenskri lögsögu með íslensku merki.
Íslandsstofa sér um kynningarstarf á mörkuðum fyrir íslenskar sjávarafurðir undir merkjum Iceland Responsible Fisheries. Markmiðið er að skapa verðmæta ímynd með því að tengja saman íslenskan uppruna afurðanna og ábyrgar fiskveiðar.