Ýsu- og ufsaveiðar hljóta viðhaldsvottun

Ýsu- og ufsaveiðar hljóta viðhaldsvottun

24 janúar 2017

Óháð vottunarnefnd á vegum írsku vottunarstofunnar Global Trust/SAI Global hefur lokið árlegri úttekt til viðhaldsvottunar á veiðum á Íslandsmiðum á ýsu (Melanogrammus aeglefinus) og ufsa (Pollachius virens). Vottunin er samkvæmt nýútgefnum og endurskoðuðum staðli um ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible Fisheries Management Standard 2.0).

Viðhaldsvottunin á ýsu- og ufsaveiðum er byggð á sömu forsendum og nýlegar viðhaldsvottanir á þorsk- og gullkarfaveiðum þar sem úttektin tók einnig til nýrra krafna sem er að finna í endurskoðuðum IRFM staðli. Tilgangurinn með árlegri viðhaldsvottun er að vakta mögulegar breytingar sem gætu hafa átt sér stað við stjórn fiskveiða, á mati á stærð og ástandi fiskistofnanna og á öðrum umhverfisþáttum frá síðustu úttekt árið 2015.

IRFM staðallinn sem vottað er eftir byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) og er ISO faggildur. Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO17065 faggiltu kerfi Global Trust/SAI Global og veitir trúverðuga vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.

Með úttektinni hafa veiðarnar staðist árlega úttekt til viðhaldsvottunar og eru vottaðar skv. endurskoðuðum IRFM staðli 2.0. Vottunarskýrslurnar eru aðgengilegar á vefnum, ýsa og ufsi.

Nánari upplýsingar um vottunina veita Finnur Garðarsson, finnur@irff.is, gsm 896 2400 og Hrefna Karlsdóttir, hrefna@irff.is, gsm 661 4555 hjá Ábyrgum fiskveiðum ses.