Vottunarverkefni ÁF hlýtur viðurkenningu af hálfu GSSI

4 nóvember 2016

Fyrr á árinu sóttu Ábyrgar fiskveiðar ses (ÁF) um  úttekt af hálfu Global Sustainable Seafood Initiative (GSSI) á vottunarverkefni ÁF (Iceland Responsible Fisheries Management Certification Programme). Í dag tilkynnti stjórn GSSI að vottunarverkefni ÁF hefði staðist allar lykilkröfur til að hljóta viðurkenningu á ______.

Markmiðið með starfsemi GSSI er að auka gagnsæi vottunar og auðvelda samanburð og efla þannig traust og stuðla að upplýstu vali í viðskiptum með vottaðar sjávarafurðir. Ferlið fól m.a. í sér heimsókn óháðra sérfræðinga frá GSSI og úttekt á starfsemi og fiskveiðistaðli ÁF.

Alls eru lykilkröfur í úttektinni 143 talsins, sem settar eru fram í s.k. mælistiku GSSI (GSSI Global Benchmark Tool). Kröfurnar byggja á Siðareglum Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna um ábyrgð í fiskimálum (FAO) og Leiðbeiningum FAO um umhverfismerkingar og vottun vegna veiða úr villtum fiskistofnum. Jákvæð niðurstaða úttektar staðfestir að vottunarverkefni ÁF og fiskveiðistaðall mætir þeim kröfum sem FAO setur fram um vottun veiða. 

GSSI er alþjóðlegur samvinnuvettvangur verslanakeðja, félagasamtaka, sérfræðinga og opinberra og alþjóðlegra stofnana. Þær verslunarkeðjur sem eru félagar í GSSI hafa skuldbundið sig til að viðurkenna öll þau vottunarverkefni sem standast GSSI úttekt þegar kemur að sölu sjávarafurða. Meðal þeirra eru verslunarkeðjur eins og Ahold Delhaize, Metro Group, High Liner Foods, Morrisons og Trident.