Þorskveiðar endurvottaðar undir merkjum Iceland Responsible Fisheries

Þorskveiðar endurvottaðar undir merkjum Iceland Responsible Fisheries

28 október 2014

Óháð vottunarnefnd á vegum írsku vottunarstofunnar Global Trust/SAI Global hefur endurvottað veiðar á þorski (Gadus morhua) á Íslandsmiðum samkvæmt íslensku kröfulýsingunni um ábyrgar fiskveiðar (Icelandic Responsible Fisheries Management Specification). Vottunin staðfestir að veiðunum er stjórnað á ábyrgan hátt í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar kröfur og ber vitni um framþróun í íslenskum fiskveiðum.

Kröfulýsingin sem vottað er eftir er staðall sem byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO65 faggiltu kerfi Global Trust og veitir trúverðuga vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.

Úttektin fól í sér yfirgripsmikla skoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, þar á meðal stjórnunarreglum, aflamarkskerfinu og mati á stærð stofnsins. Niðurstaða úr mati vottunarnefndar var að stjórnkerfið og aflareglan fælu í sér varúðarnálgun sem stuðlar að ábyrgum veiðum og góðri umgengni um vistkerfið.

Þorskafurðir skapa 32% útflutningsverðmætis sjávarafurða. Aflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiðiári er 216.000 tonn og er ástand þorskstofnsins gott eins og fram kemur í árlegri ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar.

Vottunarskýrslan er aðgengileg hér á vefnum innan skamms. Hér er hægt að nálgast fréttatilkynninguna.

Nánari upplýsingar um vottunina veita:

Finnur Garðarsson, verkefnisstjóri hjá Ábyrgum fiskveiðum ses. finnur@fiskifelag.is, gsm 896 2400 og

Guðný Káradóttir, markaðsstjóri IRF, forstöðumaður matvælasviðs hjá Íslandsstofu, gudny@islandsstofa.is gsm 693 3233.