Saltfiskvika um allt land 4. – 15. september - „gleymda“ sælkeravaran

Saltfiskvika um allt land 4. – 15. september - „gleymda“ sælkeravaran

4 september 2019
Saltfiskvika um allt land 4. – 15. september - „gleymda“ sælkeravaran

Blásið verður til Saltfiskviku á veitingastöðum hringinn í kringum landið dagana 4. – 15. september nk.

Alls taka 13 veitingastaðir þátt í viðburðinum – allir með a.m.k. einn saltfiskrétt á matseðlinum. Gestakokkar frá Ítalíu, Spáni og Portúgal eru jafnframt væntanlegir sem munu elda á völdum stöðum. Einnig Instagram leikur þar sem hægt er að vinna ferð til Barcelona.  

Markmiðið með Saltfiskvikunni er að gera þessari einni verðmætustu útflutningsafurð Íslands hærra undir höfði og auka veg hennar heima fyrir.

Gestakokkar frá Ítalíu, Spáni og Portúgal + 13 veitingastaðir

Löng hefð og saga er fyrir vinnslu saltfisks hér á landi en áður fyrr var öðru fremur notast við saltið til að lengja geymsluþol. Í dag er saltið hins vegar notað til að framleiða sælkeravöru sem nýtur mikilla vinsælda víða um lönd – jafnt um jól, páska sem og aðra daga. 

Í tilefni Saltfiskvikunnar eru þrír gestakokkar væntanlegir til landsins, þau; Carlota Claver frá Spáni, Diogo Rocha frá Portúgal og Lorenzo Alessio frá Ítalíu. Munu þau kynna hvernig hægt er að matreiða saltfisk hvert með sínu sniði en öll eiga þau það sameiginlegt að koma frá löndum þar sem saltfiskurinn er í hávegum hafður. Gestakokkarnir munu einnig skipta sér á hluta veitingastaðanna sem taka þátt í Saltfiskvikunni og elda á meðan þeir dvelja hér.

Eftirtaldir veitingastaðir taka þátt í Saltfiskvikunni;

  1. Bacalao bar, Hauganesi
  2. Báran, Þórshöfn 
  3. Einsi Kaldi, Vestmannaeyjum
  4. Höfnin, Reykjavík
  5. Hótel Selfoss, Selfossi
  6. Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Reykjavík 
  7. Kaffivagninn, Reykjavík
  8. Krauma, Reykholti
  9. Matur og drykkur, Reykjavík
  10. Rub 23, Akureyri 
  11. Salthúsið, Grindavík
  12. Tapasbarinn, Reykjavík 
  13. Von Mathús, Hafnarfirði 

#saltfiskvika á Instagram – ferð til Barcelona í boði

Á meðan á vikunni stendur eru viðskiptavinir sem panta sér saltfiskrétt hjá þátttakendum Saltfiskvikunnar hvattir til að birta mynd á Instagram, merkta myllumerkinu #saltfiskvika. Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og mun sá fá ferð fyrir tvo til Barcelona.

Í mötuneytum, leikskóla og hjá 1, 2 & ELDA

Mötuneyti vinnustaða eru hvött til að bjóða upp á saltfisk í hádeginu meðan á Saltfiskvikunni stendur – enda á hann ekki síður við þá en á kvöldin. Þegar hafa þó nokkrir vinnustaðir ákveðið að vera með og bjóða upp á saltfisk í hádeginu í Saltfiskvikunni, þ.e.; Arion banki, ITS, Marel, Origo, Orkuveitan, Seðlabankinn, Síminn og VÍS. Börnin á leikskólanum Laufásborg munu einnig smakka saltfisk meðan á vikunni stendur en þar mun landsliðskokkurinn Lorenzo Alessio elda. Saltfisk verður einnig að finna í völdum matarpökkum 1, 2 & ELDA í Saltfiskvikunni fyrir áhugasama.

Vonir eru bundnar við að landsmenn nýti tækifærið og gefi saltfiskinum séns – enda sælkeravara sem farið hefur allt of hljótt hérna heima.