Kynningar- og umsagnarferli um IRFM staðalinn 13. okt. - 12. nóv. 2015

13 október 2015

Fyrir hönd þátttökuaðila Ábyrgra fiskveiða ses. (ÁF) og íslensks sjávarútvegs tilkynnist hér með  að fiskveiðistjórnunarstaðall ÁF um vottun ábyrgra fiskveiða á Íslandi er nú opinn til kynningar og umsagnar í 30 daga frá 13. október til 12. nóvember að báðum dögum meðtöldum.

Um er að ræða fyrra kynningar- og umsagnarferli af tveimur  sem fer fram af hálfu tækninefndar ÁF og er hluti af formlegri fimm ára endurskoðun staðalsins. Áhugasamir aðilar geta smellt á eftirfarandi tengil og fylgt leiðbeiningum um hvernig senda ber athugasemdir um staðalinn á íslensku eða ensku.

Nánari upplýsingar um Ábyrgar fiskveiðar og staðalinn

Megintilgangur vottunar á vegum ÁF er að sýna fram á með gagnsæjum hætti að Íslendingar stundi ábyrgar fiskveiðar og fari að alþjóðlega viðurkenndum samningum og viðmiðum sem sett eru af Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ, FAO.

IRFM staðallinn byggir m.a. á Siðareglum FAO í fiskimálum frá 1995 (FAO Code of Conduct for Responsible Fisheries) og Leiðbeiningum FAO um umhverfismerkingar og vottun á veiðum og afurðum villtra fiskistofna frá 2005/09 (FAO Guidelines for the Ecolabelling of Fish and Fishery Products from Marine Capture Fisheries) ásamt ISO stöðlum og öðrum alþjóðlegum samningum um staðlagerð og faggildingu.Vinna við staðalinn hófst upphaflega á vettvangi Fiskifélags Íslands en vottunarverkefnið færðist yfir til sjálfseignarstofnunarinnar Ábyrgra fiskveiða árið 2011. 

Vottun sem byggir á IRFM staðlinum hefur hlotið faggildingu samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum ISO staðli (ISO/IEC Guide 65 Standard for certification of product and process schemes). Faggildingin var unnin af INAB (Irish National Accreditation Board), sem er aðili að Alþjóðasamtökum faggildingaraðila (International Accreditation Forum).

Tækninefnd ÁF, sem ber ábyrgð á skrifum og útgáfu staðla ÁF, samanstendur af sérfræðingum opinberra stofnana, sem tengjast sjávarútvegi og félögum og fyrirtækjum í greininni. Tækninefndinni ber samkvæmt verklagsreglum að uppfæra formlega staðla á fimm ára fresti að lágmarki. Eftir þá endurskoðun munu drög að endurskoðuðum staðli verða sett í 60 daga kynningar- og umsagnarferli eins og ber að gera skv. leiðbeiningum FAO.

Tækninefndin mun taka til skoðunar allar efnislegar athugasemdir, sem berast og sem leiða til breytinga til batnaðar miðað við hlutverk og markmið staðalsins. Nefndin mun ekki svara skriflega einstökum athugasemdum.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Garðarsson formaður tækninefndar ÁF, finnur@irff.is, sími 896 2400.

Nánari upplýsingar um hvernig senda má athugasemdir.