Árleg viðhaldsvottun þorsks, ýsu og ufsa

Dagana 26.-30. október fer fram á vegum Global Trust Ltd. vottunarstofunnar, árleg viðhaldsvottun á þorsk-, ýsu- og ufsaveiðum. Þetta er fyrsta viðhaldsvottun á veiðunum síðan þær voru endurvottaðar, en þorskveiðarnar voru endurvottaðar í október 2014 og ýsu- og ufsaveiðar í janúar 2015. Viðhaldsvottunin nær til veiða þessara þriggja tegunda innan íslenskrar lögsögu og allra veiðarfæra.
Óháð vottunarnefnd frá Global Trust Ltd. mun taka út veiðarnar gagnvart íslenska staðlinum um ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible Fisheries Management Specification).
Nánari upplýsingar um vottunarnefnd og úttekt.