Íslenski saltfiskurinn í eldlínunni í Lissabon

Íslenski saltfiskurinn í eldlínunni í Lissabon

1 desember 2015

Þann 20. nóvember sl. var "Dagur hins íslenska saltfisk" í Escola de Hotelaria e Turismo skólanum Í Lissabon. Íslandsstofa stóð fyrir kynningunni fyrir hönd íslenskra framleiðenda og útflytjenda og átti gott samstarf við íslenska aðila í Portúgal við kynninguna. Skólinn er rótgróinn og hefur ýmsar námsbrautir, meðal annars matreiðslubraut, veitingastaðastjórnun og hótelstjórnun. Nemendur eru tæplega 500 talsins.

Dagskrá var með þeim hætti að um morguninn gafst verðandi kokkum tækifæri á að vinna með íslenskan saltfisk í verklegum kennslustundum. Afraksturinn var svo á boðstólum í hádeginu, bæði í mötuneyti nemenda í skólanum og á veitingastað sem rekinn er samhliða skólanum og opinn er almenningi. Fyrsta árs nemar sáu um að útbúa málsverð nemenda, en þriðja árs nemar fengu að spreyta sig á flóknari og fágaðri matseld veitingastaðarins. Af fimm réttum á hádegismatseðli voru þrír sem innihéldu íslenskan saltfisk. Boðið var upp á gómsætar gellur með ostrum og jógúrt, súpu með kjúklingabaunum og saltfisk, og hnakkastykki með kornbrauði, sem er þekktur portúgalskur réttur. Að loknum hádegisverði og frágangi var haldinn kynningarfyrirlestur á sal fyrir nemendur, þar sem fjallað var ofan í kjölinn um gæði og uppruna íslenska saltfisksins.

Að degi loknum komu kennarar og nemendur að máli við fulltrúa Íslandsstofu og gerðu góðan róm að uppákomunni, og töluðu fallega um íslenskan saltfisk. Aðgerð þessi var liður í þeirri stefnu að ná í auknum mæli til ungra og upprennandi matreiðslumanna á helstu mörkuðum, en svipaðir viðburðir hafa þegar verið haldnir á nokkrum stöðum á Spáni.