Ísland gestaþjóð á North Atlantic Seafood Forum

Ísland gestaþjóð á North Atlantic Seafood Forum

26 febrúar 2019

NASF er stærsta viðskiptaráðstefna heims á sviði sjávarútvegs og fer hún fram árlega. Í ár verður Ísland gestaþjóð á ráðstefnunni, sem býður upp á ýmis tækifæri fyrir íslenska þátttakendur á sýningunni.   

Inspired by Iceland – Sjálfbærni, gæði og nýsköpun

Á fyrsta degi ráðstefnunnar verður boðið verður upp á kynningardagskrá og pallborðsumræður undir yfirskriftinni „Inspired by Iceland” þar sem um 20 íslensk fyrirtæki frá ýmsum sviðum sjávarútvegs taka þátt - úr veiðum, vinnslu, fiskeldi, tækni og þjónustu. Íslandsstofa framleiðir kynningaefni fyrir íslensku þátttökufyrirtækin undir þemanu „sjálfbærni, gæði og nýsköpun“.

Á ráðstefnunni verða málstofur um bolfisk, uppsjávarfisk og fiskeldi þar sem umhverfismál og sjálfbærni verða í brennidepli. Norræna ráðherranefndin skipuleggur auk þess málstofu um norrænan sjávarútveg og fjórðu iðnbyltinguna, samhliða ráðstefnunni.

Mikilvægir aðilar í sjávarútvegi sækja NASF

Ráðstefnuna sækja árlega hátt í þúsund manns sem flestir eru stjórnendur fyrirtækja á ýmsum sviðum sjávarútvegs, svo sem fiskveiða og vinnslu, fiskeldis, markaðssetningar og sölu, en einnig fulltrúar fyrirtækja sem þjónusta sjávarútveg og fiskeldi, svo sem á sviði tækni, fjármögnunar, fjárfestinga, flutninga og trygginga.

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs setur ráðstefnuna, en auk hennar munu Peter Thomson, yfirmaður málefna hafsins hjá Sameinuðu Þjóðunum og Árni Mathiesen, aðstoðarforstjóri Matvælastofnunar Sameinuðu Þjóðanna FAO ávarpa ráðstefnugesti. Meðal íslenskra fyrirlesara má nefna Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Guðmund Kristjánsson forstjóra HB Granda.

Þá eru tvö íslensk fyrirtæki þátttakendur í nýsköpunarkeppni NASF 2019 sem fer fram 7. mars. Það eru fyrirtækin Margildi og Sea Data Center sem eru fulltrúar Íslands en 12 fyrirtæki víðs vegar að voru valin úr hópi 45 umsækjenda.

Nánari upplýsingar um þátttöku Íslands veita Björgvin Þór Björgvinsson hjá Íslandsstofu, bjorgvin@islandsstofa.is og Ingveldur Ásta Björnsdóttir, ingveldur@islandsstofa.is.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á www.nor-seafood.no