Gestir gæddu sér á gullkarfa á sýningu í Berlín

Gestir gæddu sér á gullkarfa á sýningu í Berlín

21 janúar 2016

Mikill fjöldi gesta hefur heimsótt básinn á "Grüne Woche" í Berlín þar sem íslenskur fiskur er kynntur undir merkjum Iceland Responsible Fisheries (IRF), og gæddi sér á pönnusteiktum íslenskum gullkarfa. Um er að ræða samstarf við Fisch-Informati onszentrum (FIZ) í Hamborg en sú stofnun vinnur að því að upplýsa þýska neytendur um hollustu sjávarafurða og stuðla að aukinni fiskneyslu í Þýskalandi.

Fjöldi fisktegunda frá Íslandi er til sýnis í fiskborði undir merkjum IRF. Fyrstu þrjá dagana gátu sýningargestir gætt sér á pönnusteiktum gullkarfa sem féll svo sannarlega fel í kramið hjá gestum enda hefur karfi lengi verið ein vinsælasta hvítfisktegundin hjá þýskum neytendum í gegnum árin.

Christian Schmidt, landbúnaðaráðherra Þýskalands og Michael Müller borgarstjóri Berlínar heimsóttu sýninguna ásamt miklum fjölda fjölmiðlamanna. Dr. Matthias Keller, frá FIZ og framkvæmdastjóri Bundesmarktverband der Fischwirtschaft kynnti fyrir þeim m.a. vottun undir merkjum IRF, íslenska fiskveiðistjórnun og helstu tegundir sem Íslendingar flytja inn á þýska markaðinn eins og gullkarfa, ufsa, steinbít og þorsk.

Á sýningunni stendur yfir dagana 15.-24. janúar, er dreift bæklingi með íslenskum karfauppskriftum og upplýsingum um íslenskan sjávarútveg, vottun og almennum upplýsingum um Ísland. Þá gefur FIZ tösku með skemmtilegri mynd af íslenska gullkarfanum og auðkenni IRF vottunar.

Framleiðendur hvaðanæva úr heiminum kynna afurðir sínar á Grüne Woche s og voru sýnendur rúmlega 1.700 árið 2015, þar af 655 frá öðrum löndum en Þýskalandi.