Formlegu umsagnarferli um rekjanleikastaðal lokið

7 júlí 2017

Formlegu sextíu daga opinberu kynningar- umsagnarferli um endurskoðun og uppfærslu á rekjanleikastaðli Ábyrgra fiskveiða ses (ÁF) er lokið. Það stóð yfir 8. maí til 6. júlí 2017.

Að loknu  samþykki tækninefndar ÁF mun uppfærður staðall verða gefinn út og leysa af hólmi eldri útgáfu frá árinu 2011.