Ferskir íslenskir vindar í Barcelona

Ferskir íslenskir vindar í Barcelona

11 febrúar 2015

Dagana 18.-19. febrúar verður haldin Íslandskynning í Barcelona til að efla viðskiptatengsl og auka áhuga á Íslandi og íslenskum afurðum. Áherslan er einkum á að kynna saltfiskafurðir, nýsköpun tengda sjávarafurðum, ferðaþjónustu og bókmenntir.

Verkefnið er samstarfsverkefni Íslandsstofu, sendiráðs Íslands í París, sem er jafnframt sendiráð gagnvart Spáni, aðalræðisskrifstofunnar í Barcelona og Spánsk-íslenska viðskiptaráðsins. Einnig er unnið í samstarfi við Viðskiptaráðið í Barcelona og Ferðamálaráð Barcelona (BarcelonaTourist Board).

Sjávarafurðir eru langstærsti hluti vöruútflutnings Íslendinga til Spánar og var verðmæti hans um 22 milljarðar króna árið 2014. Spánn er nú annar verðmætasti markaður fyrir sjávarafurðir frá Íslandi og vega saltaðar þorskafurðir þar þyngst. Alls heimsóttu um 21.000 Spánverjar landið árið 2014 sem er 23% aukning frá árinu áður. Um 61% Spánverja heimsækja landið á háönn (júní til ágúst). Sífellt fleiri Spánverjar koma utan háannartíma (jan-maí, sept.- des.) og nam aukning heimsókna utan háannar 28% frá 2013 til 2014.

Haldinn verður kynningarfundur og móttaka í glæsilegum húsakynnum Viðskiptaráðsins í Barcelona, Casa Llojta de Mar. Yfirskrift fundarins er Ferskir vindar frá Íslandi. Forseti Íslands verður aðalræðumaður en auk þess ávarpar formaður Spánsk-íslenska viðskiptaráðsins fundinn og síðan fylgja kynningar á ferðaþjónustu, saltfiskafurðum, nýsköpun og bókmenntum. Í móttöku að fundinum loknum verður boðið upp á veitingar úr íslensku hráefni, saltfisk og fleiri sjávarafurðir sem og tvíreykt hangikjöt. Forsetinn heimsækir fiskmarkað og frystivöruverslun sem selur sjávarafurðir frá Íslandi. Auk þess heldur hann fyrirlestur í IESE viðskiptaháskólanum og ávarpar bókmenntaviðburð. Lögð er sérstök áhersla á kynningu hágæðasaltfiskafurða í þessari Íslandskynningu en Íslandsstofa stýrir framkvæmd markaðsverkefnis sem 24 fyrirtæki í framleiðslu og sölu saltaðra afurða taka þátt í. Sjá spænska vefsíðu verkefnisins og Facebook síðu