Kynningarfundur með kaupendum í London

Kynningarfundur með kaupendum í London

24 september 2015

Þann 21.september var haldinn kynningarfundur í sendiráði Íslands í London fyrir kaupendur íslenskra sjávarafurða í Bretlandi. Yfirskrift fundarins var Iceland Responsible Fisheries Workshop. Það voru Íslandsstofa, Ábyrgar fiskveiðar ses og sendiráðið í London sem stóðu að fundinum en þetta er í fimmta sinn sem slíkur fundur er haldinn með kaupendum.

Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra í London opnaði fundinn og bauð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra velkominn. Í ræðu sinni lagði ráðherra áherslu á að fiskveiðistjórn Íslands byggði á sjálfbærum viðmiðunum og sagði hann að vegna þessa væru fiskistofnar á Íslandsmiðum í góðri stöðu. Greinin legði áherslu á gæði, aukna verðmætasköpun og ábyrgar fiskveiðar.

Þorsteinn Sigurðsson sviðsstjóri nytjastofnasviðs hjá Hafrannsóknastofnun fór ítarlega yfir rannsóknir og ráðgjöf stofnunarinnar sem veitir ráðgjöf um veiði á 35 tegundum í hafinu. Þá flutti Hrefna Karlsdóttir verkefnisstóri hjá Ábyrgum fiskveiðum ses kynningu á vottun undir merkjum Iceland Responsible Fisheries  og því starfi sem nú fer fram við svokallað "benchmarking" á vottunarprógrömmum undir regnhlíf GSSI (Global Sustainable Seafood Initiative). Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri SFS, sem stjórnaði fundinum, tók saman niðurstöður og nefndi að íslenskur sjávarútvegur treysti á vísindarannsóknir til að geta byggt upp greinina til framtíðar og að verðmæti afurðanna skiptu miklu máli. 

Að fundi loknum var fundargestum boðið til hádegisverðar á veitingastaðinn Texture í London sem Agnar Sverrisson rekur í félagi við breskan aðila. Á matseðlinum var þorskur og fleira góðgæti frá Íslandi. Austin Mitchell, fyrrverandi þingmaður frá Grimsby, var heiðursgestur og ávarpaði gesti yfir matnum.