Kokkar frá Barcelona kunna að meta íslenska fiskinn

Kokkar frá Barcelona kunna að meta íslenska fiskinn

23 febrúar 2018

Þessa dagana eru hér á landi kokkar af þremur veitingastöðum í Barcelona. Guil­lem Rofes, Jordi Asensio og Francisco Diago Curto tóku allir þátt í kynningarsamstarfi sl. haust þar sem 14 veitingastaðir buðu upp á saltaðan þorsk frá Íslandi og spænskan bjór, "Islandia al Plat". Kynningin var liður í markaðsverkefni í Suður Evrópu undir merkjum Bacalao de Islandia á Spáni sem Íslandsstofa hefur umsjón með.

Valdir voru þrír bestu réttirnir sem voru eldaðir úr söltuðum þorskafurðum frá Íslandi og kokkunum boðið til Íslands til að kynnast veiðum, vinnslu og leyndarmálinu að baki gæðum íslenska fisksins. Þeir munu síðan halda áfram að kynna fiskinn frá Íslandi á veitingastöðum sínum. Markmiðið er að styrkja enn frekar ímynd Íslands sem upprunalands gæðaafurða á þessum lykilmarkaði og byggja upp sambönd við matreiðslumenn á svæðinu sem eru tilbúnir að hampa íslenskum uppruna á veitingastöðum sínum.

Kokkarnir taka líka þátt í saltfiskhátíð sem Tapas Barinn stendur fyrir 21. - 28. febrúar.  Það er því tilvalið nýta tækifærið og smakka verðlaunaréttina hér á Íslandi. 

Sjá einnig umfjöllun Morgunblaðsins.