Upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir
Upprunamerki fyrir íslenskt sjávarfang var tekið í notkun árið 2009. Tilgangur merkisins er að tryggja kaupendum og neytendum upplýsingar um að íslenskar sjávarafurðir eigi uppruna sinn í ábyrgum fiskveiðum Íslendinga. Merkið má nota á íslenskar sjávarafurðir sem unnar eru úr afla í íslenskri lögsögu, úr stofnum sem ekki teljast deilistofnar, hvort sem er innan aflamarkskerfis eða utan aflamarks. Það má nota á afla íslenskra fiskiskipa úr deilistofnum sem eru að hluta til innan íslenskrar lögsögu og lúta viðurkenndri heildarstjórnun. Merkið fylgir þannig afurðunum á markað um allan heim og bera kaupendur sjávarafurða ábyrgð á því að eftir reglum sé farið með traustu rekjanleikakerfi.

Sækja skal um heimild til notkun á upprunamerkinu með því að fylla út umsókn á vefnum eða hlaða niður word skjali, fylla út umsókn og senda til Finns Garðarssonar, finnur@fiskifelag.is hjá Ábyrgum fiskveiðum. Nánari upplýsingar veitir Finnur Garðarsson í sími 591 0308. Greitt er skráningargjald kr. 90.000 (EUR 600 eða USD 800) sem er eingreiðsla og gildir jafnframt sem greiðsla fyrir notkun á auðkenni vottunar þegar fyrirtæki hafa farið í gegnum rekjanleikavottun.
Útflytjendur sjávarafurða greiða árlega þátttökugjald sem nemur 0,5 promill (kr. 500 af hverri 1 milljón kr.) af FOB útflutningsverðmæti liðins árs sem innheimt er ársfjórðungslega. Gjaldinu er ætlað að standa undir markaðs- og kynningarstarfi, einkum gagnvart kaupendum erlendis, vottunarkostnaði og daglegum rekstri.
