Fréttir og útgáfa

Viðburðir

Brussel 2012

Hvenær
24. apr. - 26. apr.

Staðsetning
Brussel

Vefsíða
www.bostonseafood.com

European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe sýningarnar verða haldnar næst dagana 24.-26. apríl 2012 í Brussel. Íslandsstofa skipuleggur íslenskan þjóðarbás og tekur Iceland Responsible Fisheries (IRF) þátt í sýningunni; erum með bás nr. 834 í höll 6

Fyrirtækjum sem eru aðilar að Iceland Responsible Fisheries er bent á að hægt er að nýta sér aðstöðu á sýningarbás IRF til að funda með kaupendum og kynna IRF, ábyrgar veiðar og notkun á upprunamerki í markaðsstarfi. Hægt er að bóka fundi með fulltrúum IRF meðan á sýningunni stendur: Kristjáni Þóararinssyni formanni tækninefndar, Finni Garðarssyni verkefnisstjóra og Guðnýju Káradóttur markaðsstjóra.

Hafið samband við Guðnýju Káradóttur, markaðsstjóra IRF, varðandi nánari upplýsingar og til að bóka fundi í síma 511 4000 eða sendið póst á gudny@islandsstofa.is.

IRF mun halda hádegisverðarfund meðan á sýningunni stendur fyrir boðsgesti, kaupendur sjávarafurða frá Íslandi. Fundurinn er haldinn í samstarfi við ASMI, Alaska Seafood Marketing Institute, verður kynntur nánar þegar nær dregur.