Viðburðir
NASF í Osló

North Atlantic Seafood (NASF) er ráðstefna ætluð stjórnendum í sjávarútvegi. Hún er vettvangur til að hittast, ræða og kynnast því sem hæst ber í málefnum tengdum veiðum, vinnslu og sölu á sjávarafurðum við Norður Atlantshafið. Á ráðstefnunni, sem haldin verður 6.-8. mars 2012, verður m.a. fjallað um nýsköpun, rannsóknir, sjálfbærni, rekstur og fjármálamarkað. Allt að 100 fyrirlesarar halda erindi á ráðstefnunni. Árið 2010 sóttu ráðstefnuna um 450 manns frá 22 löndum.